Thursday, September 30, 2010

Angist.

Nei andskotinn hirði það. Nú verð ég að fara að taka mig á. Það er ekki eðlilegt að geta ekki tekið höfnun, fullorðin manneskjan. Áður en ég betrumbæti mig þá hef ég þetta að segja: Helvítis, andskotans, fokking, drullurassgat, slátra þessum lýð, höggva af þeim hendurnar.
Já ég sumsé fékk ekki nákvæmlega það sem ég vildi og litli auminginn sem býr inni í mér fór á feitt rampage. En samt bara inni í mér. Það er það góða við litla aumingjann, hann er ekki á leiðinni upp í Hallgrímskirjuturn með kindabyssu. Bara snýtiklút og væmin lög á vasadiskói.

No comments:

Post a Comment